Vona eða ekki vona….

 

 

Nú vil ég fara að fá sumar, fara í lautarferð með nesti, spila kriket, fíflast fram á nótt í miðnætursólinni og fá nokkrar frekknur á nebbann. Er hægt að byðja um eitthvað betra? Þó mér finnist veturinn góður þá finnst mér alltaf verið farið að teygjast full mikið úr honum á þessum tíma og það sem verra er að hann getur teygst miklu mun meira.

Það var um daginn að ég kom út, dró djúpt  andann til að fylla lungun af frískandi loftinu og þá fannst mér sem ég finndi örla fyrir örlitlu vori. Ég fann hvernig aukinn orka streymdi og kroppinn og ég hugsaði þá með mér, getur það verið að veturinn fari að taka enda. Nei Guðrún ekki hugsa svona, það á eftir að valda vonbrigðum enn er langt í vorið. Hvað er maður svo sem að vona ? Eru vonir ekki gerðar til þess að bregðast ? Þó ég sé nú nokkuð viss um að vorið komi á endanum þá er það ekki trygging fyrir neinu betra. Eins og segir í ljóðinu “stundum verða vorin vonum manna hörð”. Ég veit ekki……kannski er betra að vona, kannski ekki.

Ég held að ég reyni allavega að gera mér að góðu það sem ég hef nú þegar, það er ótal margt sem hægt er að gleðjast yfir þó ég fari sennilega ekki á ströndina í dag….ekki úr þessu.

Um daginn fékk ég senda litla kveðju frá gamalli vinkonu minni sem hljóðaði svona

Kæra góða Guðrún Gróa. Í vissu um að “hörpusláttur heiðríkjunnar” þagni aldrei hjá þér, færðu einlægar farsældar – gleði óskir á nýju ári.

Þessi litla kveðja gerði mig eitthvað svo ótrúlega glaða og vakti mig til umhugsunar um alla þá litlu hluti sem eru og gerast í kringum mann og geta vakið svo mikla gleði og lífgað upp á annars grámyglulegan hversdaginn en maður gefur engann gaum að þeim e.t.v. bildaður af öllu því neikvæða sem sífellt er verið að hamra á.

Þetta er farið að líkjast kafla í sjálfhálparbók, hvað um það, er ekki málið að reyn að hjálpa sér sjálfur held að flestir aðrir hafi nóg á sinni könnu.

Í hvert skipti sem eitthvað gerir mig leiða, reiða eða pirraða ætla ég að finna tvennt sem geiri mig glaða. Tvær gleðir  á móti einum leiðindum hlýtur að þýða yfirgnæfandi líkur á betra skapi, ef ekki….þá verður bara að hafa það

GG

 

 

This entry was posted in nunnurnar.com. Bookmark the permalink.

One Response to Vona eða ekki vona….

  1. stina says:

    Eg vona ad ég komist bràdum i adra lautarferd med thér à Champs de Mars…

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>